Textíll og hringrásarkerfi sem jafnréttismál

Zoom
Umhverfismál er eitt brýnasta viðfangsefni samtímans og hugtakið hringrásarhagkerfi er þar miðlægt. Með því er átt við að verðmætum er viðhaldið með hringrás eins lengi og hægt er þannig að auðlindir verði ekki að úrgangi. Textíll er fjórði stærsti álagsþáttur umhverfismála vegna einkaneyslu, á eftir húsnæði, samgöngum og matvælum. Með dæmi af textíl, textílvinnslu og textílnotkun verður sýnt fram á hvernig sjálfbærni og hringrásarhagkerfi eru jafnréttismál sem skoða þarf með hliðsjón af kynjuðum valdatengslum.
Kynningin er hluti af H2020 verkefninu CENTRINNO. Þorgerður J. Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands, og Laufey Axelsdóttir, nýdoktor í kynjafræði við Háskóla Íslands, verða með erindi undir fundarstjórn Þorgerðar.Viðburðurinn fer fram á Zoom og fer fram á íslensku. Tilkynnt verður síðar hvort viðburðinum verður einnig streymt.
Tengill á fundinn: https://eu01web.zoom.us/j/6231443455
Viðburðurinn er hluti af Jafnréttisdögum.
