Skip to main content

Sveppum safnað í Heiðmörk - Með fróðleik í fararnesti

Sveppum safnað í Heiðmörk - Með fróðleik í fararnesti - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. ágúst 2022 17:00 til 19:00
Hvar 

Bílastæði við Rauðhóla

Nánar 
Ekkert að panta, bara mæta!  
Öll velkomin

Langar þig að þekkja góða sveppi frá þeim vondu? Þá ættirðu að koma í sveppaferð í Heiðmörk fimmtudaginn 25. ágúst með Háskóla Íslands, Ferðafélagi Íslands og Náttúruminjasafni Íslands. Núna er nefnilega tíminn – sveppatíminn. 

Sveppir eru algert sælgæti og það sem er einna skemmtilegast við þá – þeir vaxa villtir í íslenskri náttúru og ekki síst í skóglendi eins og í Heiðmörk. Það er hins vegar afar mikilvægt að þekkja þá ætu og sniðganga þannig þá vondu og sumir sveppir geta verið eitraðir. 

Í þetta skiptið fáum við bæði sérfræðinga frá Náttúrminjasafni Íslands og HÍ til að leiða fólk um auðlindir Heiðmerkur en þau Ragnhildur Guðmundsdóttir, líffræðingur og safnkennari frá Náttúruminjasafninu, og Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði við Háskóla Íslands og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands, taka vel á móti göngufólki ásamt fríðu föruneyti sérfræðinga frá báðum stofnunun. Auk þess verður fólk frá Ferðafélagi Íslands á staðnum og leiðbeinir líka göngufólki.  

Mæting er kl. 17 á einkabílum á bílastæði við Rauðhóla. Haldið verður í halarófu frá bílastæðinu lengra inn í Heiðmörkina og ætla má að ferðin í heild sinni taki um tvær klst. Þau Ragnhildur og Gísli Már hvetja fólk til að koma með körfur eða ílát undir fenginn en þau hafa bæði mikla reynslu af miðlun. Gísli Már hefur verið kennari við HÍ í áraraðir og Ragnhildur hefur tekið þátt í fræðsluferðum sem þessum en hún er bæði með BS-gráðu og doktorsgráðu í líffræði frá Háskóla Íslands auk diplómagráðu í kennslufræði.

Mæting er kl. 17 á einkabílum á bílastæði við Rauðhóla. Haldið verður í halarófu frá bílastæðinu lengra inn í Heiðmörkina og ætla má að ferðin í heild sinni taki um tvær klst.

Sveppum safnað í Heiðmörk - Með fróðleik í fararnesti