Sveitastjórnakosningar 2022 - staða, kosningabarátta og málefni
![Sveitastjórnakosningar 2022 - staða, kosningabarátta og málefni - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920__XP28952.jpg?itok=Eg_RrPIv)
Hvenær
6. maí 2022 12:00 til 13:00
Hvar
Oddi
101
Nánar
Aðgangur ókeypis
Hádegisfundur á vegum Félags stjórnmálafræðinga og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála um sveitastjórnakosningarnar. Fundurinn verður haldinn þann 6.maí kl. 12:00-13:00, í Odda 101 í Háskóla Íslands.
Framundan eru sveitastjórnakosningar og af því tilefni munu þau Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor við HÍ og Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við HA fara yfir stöðuna í kosningabaráttunni, stöðu sveitastjórnafólks og fjalla um mikilvægi kosninganna og sveitastjórnamála.
Fundurinn er opinn öllum, aðgangur er ókeypis og mun fara fram á íslensku.
Hádegisfundur á vegum Félags stjórnmálafræðinga og Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála um sveitastjórnakosningarnar þann 6. maí nk. í Odda 101, HÍ.
![Sveitastjórnakosningar 2022 - staða, kosningabarátta og málefni](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/ggp2a.jpg?itok=U1Rg-m9L)