Skip to main content

Stríð, mannréttindi og lýðræði - Hvaða máli skiptir alþjóðasamvinna?

Stríð, mannréttindi og lýðræði - Hvaða máli skiptir alþjóðasamvinna? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. mars 2022 12:00 til 13:00
Hvar 

Askja

132

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Félag stjórnmálafræðinga, Alþjóðamálastofnun HÍ og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála standa fyrir hádegisfundi undir yfirskriftinni „Stríð, mannréttindi og lýðræði: Hvaða máli skiptir alþjóðasamvinna?“ þann 16.mars kl.12:00-13:00 í Öskju 132 Háskóla Íslands.

Innrás Rússa í Úkraínu vekur upp spurningar um hlutverk lýðræðisríkja í að tryggja að staðinn sé vörður um grundvallargildi lýðræðis sem eru meðal annars þau að borgaraleg réttindi og mannréttindi eru tryggð og varin bæði gagnvart utanaðkomandi ógnum sem og ógnum innanlands. Jafnframt draga átökin fram mikilvægi alþjóðasamvinnu og samtakamáttar þegar kemur að því að standa vörð um grundvallargildi lýðræðis og mannréttindi. Fundurinn hefur fengið til sín góða gesti til að ræða þessi mikilvægu atriði bæði út frá sjónarhóli samvinnu í öryggis- og varnarmálum, hvernig mannréttindi eru tryggð og hverjir standa vörð um mannréttindi.

Gestir í pallborði verða þau Bjarni Bragi Kjartansson, alþjóðastjórnmálafræðingur, Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við lagadeild HÍ, Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdarstjóri Amnesty á Íslandi og Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdarstjóri UNICEF á Ísland.

Fundarstjóri er Sigríður Víðis Jónsdóttir, rithöfundur.

Fundinum verður streymt á Facebook síðu Félags stjórnmálafræðinga.

Fundurinn er opinn öllum, aðgangur er ókeypis og mun fara fram á íslensku.