Skip to main content

Starfsþjálfun í Viðskiptafræðideild - kynningarfundur

Starfsþjálfun í Viðskiptafræðideild - kynningarfundur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. nóvember 2022 12:00 til 13:00
Hvar 

Háskólatorg

101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Nemendum í Viðskiptafræðideild býðst að fara í starfsþjálfun hjá völdum fyrirtækjum og stofnunum. Á þessum kynningarfundi í HT-101 verður farið yfir fyrirkomulag starfsþjálfunar og stöðurnar sem verða í boði á vormisseri 2023.

Dagskrá:
1. Ásta Dís Óladóttir dósent sem hefur umsjón með starfsþjálfun Viðskiptafræðideildar fer yfir fyrirkomulagið og kynnir þær stöður sem eru í boði á vormisseri 2023.

2. Nemendur sem hafa tekið þátt í starfsþjálfun deila reynslu sinni.

3. Jónína Kárdal frá Tengslatorgi Háskóla Íslands kynnir Tengslatorgið og gefur góð ráð varðandi umsóknarferlið.

Fundurinn er hugsaður fyrir nemendur Viðskiptafræðideildar en öll áhugasöm eru velkomin.

Nemendur geta kynnt sér starfsþjálfunartækifæri sem bjóðast á vormisseri.

Starfsþjálfun í Viðskiptafræðideild - kynningarfundur