Stafrænt ofbeldi

Hvenær
16. febrúar 2022 12:00 til 13:00
Hvar
Nánar
Aðgangur ókeypis
Stafrænt ofbeldi er margbreytilegt og hefur þróast hratt á undanförnum árum.
Dr. María Rún Bjarnadóttir, verkefnisstjóri stafræns ofbeldis hjá embætti Ríkislögreglustjóra flytur erindi þar sem hún útskýrir hvað stafrænt ofbeldi er og hvernig það birtist í dag.
Í umræðum tekur einnig þátt Ugla Stefanía Jónsdóttir, kynjafræðingur og formaður Trans Ísland.
Fundi stýrir Embla Guðrúnar Ágústsdóttir félagsfræðingur og talskona Tabú.
Í framhaldi af erindi er boðið upp á spurningar frá áhorfendum.
Hægt er að panta táknmálstúlkun á viðburði Jafnréttisdaga í HÍ með tölvupósti á adstodarmenn@hi.is
Viðburðinum verður streymt í gegnum Facebook síðu Jafnréttisdaga.
Jafnréttisdagar 2022
