Skip to main content

Slaufunarmenning á Íslandi - hvert stefnir umræðan og hvaða ákall er um breytingar

Slaufunarmenning á Íslandi - hvert stefnir umræðan og hvaða ákall er um breytingar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. febrúar 2022 13:00 til 14:30
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hvert stefnir umræða um ofbeldi, þöggun og slaufunarmenningu? Hvers konar ákall um breytingar er að finna í umræðunni? Hvað þarf að breytast í íslensku samfélagi?

Erindi flytja Eyja Margrét Brynjarsdóttir, prófessor í heimspeki við HÍ, og Gyða Margrét Pétursdóttir, prófessor í kynjafræði við HÍ. Einnig taka þátt í umræðum þau Chanel Björk Sturludóttir, baráttu- og fjölmiðlakona, Edda Falak, umsjónarkona hlaðvarpsins Eigin konur, Jón Ingvar Kjaran, prófessor í hinsegin menntunarfræðum og félagsfræði menntunar við HÍ, og Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur og umsjónarmaður Karlmennskunnar.

Fundi stýrir Hildur Fjóla Antonsdóttir, nýdoktor hjá EDDU rannsóknarsetri við HÍ og aðjúnkt við félagsfræðideild HÍ. Í framhaldi af erindi er boðið upp á spurningar frá áhorfendum.

Þessi viðburður er á vegum Fagráðs Háskóla Íslands, jafnréttisfulltrúa HÍ, jafnréttisnefndar HÍ, Mannauðssviðs HÍ, og Stúdentaráðs HÍ.

Minnt er á úrræði Háskóla Íslands og viðbrögð við kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni. Á jafnretti.hi.is má finna nánari upplýsingar um þau.

Hægt er að panta táknmálstúlkun á viðburði Jafnréttisdaga í HÍ með tölvupósti á adstodarmenn@hi.is.

Viðburðinum verður streymt í gegnum Facebook síðu Jafnréttisdaga.

Jafnréttisdagar 2022

Slaufunarmenning á Íslandi - hvert stefnir umræðan og hvaða ákall er um breytingar