Samráðsfundur um framtíð kennsluaðstöðu í HÍ
![Samráðsfundur um framtíð kennsluaðstöðu í HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/28.jpg?itok=DpGQ5XTR)
Aðalbygging
Hátíðarsalur
Þriðjudaginn 22. nóvember kl. 11.00-12.30 verður haldinn opinn samráðsfundur um framtíð kennsluaðstöðu við HÍ í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ.
Fundurinn er haldinn í beinu framhaldi af vinnustofum þar sem hópar nemenda, kennara og annarra starfsmanna ræddu hvað þarf að breytast í núverandi kennsluaðstöðu til þess að mæta kennslufræðilegum áskorunum þar sem aðstaða nemenda og tæknibúnaður í stofum verður til fyrirmyndar. Sjá frétt um vinnustofur.
Að auki hefur fjöldi athugasemda og hugmynda borist frá einstaklingum og hópum innan háskólasamfélagsins í gegnum vefgátt verkefnisins.
Á samráðsfundinum verða frumniðurstöður þessarar vinnu kynntar, farið yfir sjónarmið hópa og kallað eftir enn frekari athugasemdum og umræðu um þetta mikilvæga málefni.
Samráðsfundurinn verður öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Öll eru hvött til að mæta, kynna sér stöðuna á verkefninu og viðra skoðanir sínar, hvort sem það er úr hópi nemenda, kennara eða annarra starfsmanna.
Nemendur ræða framtíð kennsluaðstöðu.
![Samráðsfundur um framtíð kennsluaðstöðu í HÍ](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/wx2a5.jpg?itok=wReBOAEb)