RÓT - Allt sem þú þarft að vita um Kína og meira til
![RÓT - Allt sem þú þarft að vita um Kína og meira til - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/lina_hofundur.jpg?itok=H3TX3Mff)
Hvenær
4. maí 2023 17:30 til 18:30
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 007
Nánar
Aðgangur ókeypis
Lína Guðlaug Atladóttir fjallar um bókina RÓT sem hún skrifaði og gaf út nýlega í opnum fyrirlestri í stofu 007 í Veröld - húsi Vigdísar 4. maí næstkomandi kl. 17:30. Ævintýraleg nútímavæðing, hraður uppgangur Kína, útrásarvíkingar, ópíumsalar og teþjófar koma meðal annars við sögu. Hún fjallar um breytingar frá keisarastjórn til kommúnistastjórnar, menningarmun, áskoranir og áhrifavalda.
Lína Guðlaug Atladóttir er viðskiptafræðingur og Austur-Asíufræðingur og hefur starfað við margvísleg stjórnunarstörf að mestu á kynningar- og markaðssviði bæði hérlendis og erlendis. Lína kom fyrst til Kína árið 2003 og hefur bæði verið við nám, búið og ferðast margsinnis til Kína og víðar í heimildaöflun fyrir bókina.
Lína Guðlaug Atladóttir
![RÓT - Allt sem þú þarft að vita um Kína og meira til](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4x35j.jpg?itok=R0969jy7)