Pappírssögur: Saga pappírs og bóka í Evrópu á árnýöld
Hvenær
5. maí 2022 9:00 til 18:00
Hvar
Landsbókasafn / Þjóðminjasafn
Nánar
Aðgangur ókeypis
Tveggja daga ráðstefna á vegum rannsóknarverkefnanna Paper Trails (Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum) og Heimsins hnoss (Hugvísindasvið Háskóla Íslands) í samstarfi við Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn og Þjóðminjasafn Íslands.
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að pappír frá ýmsum hliðum – framleiðslu, notkun vatnsmerkja, verslun, pappírsskorti, notkun pappírs í handrit, prentaðar bækur og skjöl svo nokkuð sé nefnt.
Ráðstefnan verður haldin í fyrirlestrasölum Þjóðarbókhlöðu og Þjóðminjasafns Íslands 5.–6. maí 2022.
Öll velkomin!
Pappírssögur: Saga pappírs og bóka í Evrópu á árnýöld