Opnun sýningarinnar Heimsins hnoss
![Opnun sýningarinnar Heimsins hnoss - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/luinnkistill.jpg?itok=OjGaSbBR)
Hvenær
5. nóvember 2022 14:00 til 15:00
Hvar
Bogasalur Þjóðminjasafns
Nánar
Aðgangur ókeypis
Sýningin Heimsins hnoss. Lúinn kistill, silfurskeið og nærbuxur (með gati) verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands laugardaginn 5. nóvember kl. 14.
Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður opnar sýninguna. Þá mun Sigurður Gylfi Magnússon, prófessor við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands, segja frá rannsókninni sem sýningin er byggð á. Verið öll velkomin.
Hægt er að fræðast um rannsóknarverkefnið Heimsins hnoss á hh.hi.is.
Sýningin Heimsins hnoss. Lúinn kistill, silfurskeið og nærbuxur (með gati) verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands laugardaginn 5. nóvember kl. 14.
![Opnun sýningarinnar Heimsins hnoss](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/73dbd.jpg?itok=WrEp3vg_)