Skip to main content

NERA Menntaráðstefna

NERA Menntaráðstefna - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
1. júní 2022 8:00 til 3. júní 2022 20:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

og Tækniskólanum.

Nánar 
Ráðstefnan er aðeins opin skráðum þátttakendum

Menntun og þátttaka á óvissutímum

Stærsta menntaráðstefna á Norðurlöndum haldin á Íslandi

Dagana 1. – 3. júní sækja tæplega 900 manns menntaráðstefnuna NERA 2022 á Íslandi.

Menntavísindasvið Háskóla Íslands heldur ráðstefnuna í samstarfi við samtökin Nordic Educational Research Association en yfirskrift ráðstefnunnar í ár er: Menntun og þátttaka á óvissutímum.

Á ráðstefnunni verður fjallað um rannsóknir um uppeldi og kennslumál en yfir 700 fræðafólk í menntavísindum halda erindi um stöðu menntunar á óvissutímum og í kjölfar heimsfaraldurs. Flestir ráðstefnugestir koma frá háskólum á Norðurlöndum en einnig hvaðan æva úr heimunum, sem dæmi eru þátttakendur frá England, Hollandi, Japan og Kína. Þrír aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru:

Unn-Doris K. Bæck, prófessor við Arctic University í Tromsø í Noregi. Hún flytur erindið Education, togetherness and robust community in precarious times. Dennis Francis, prófessor við University of  Stellenbosch í Suður-Afríku flytur erindið Precarious bodies, space & education. Guy Standing, prófessor við University of London flytur erindið Recovering the Soul of Education.

Um Nera

NERA eru samtök rannsakenda á sviði menntamála á Norðurlöndum. Samtökin var stofnuð árið 1972 og fagna samtökin 50 ára afmæli í ár. Ár hvert stendur NERA fyrir ráðstefnu á Norðurlöndum og í ár var komið að því að halda ráðstefnuna á Íslandi. Ráðstefnan fer fram í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Stakkahlíð og í Tækniskólanum.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má nálgast hér: https://nera.hi.is/

Sjá dagskrá

NERA Conference.

NERA Menntaráðstefna