Nemendur og jafnrétti - framtíðin - uppistand

Viðburðinum verður streymt
Hvernig blasa jafnréttismálin við fulltrúum nemenda í háskólum landsins?
Hver eru brýnustu málin og hvaða hlutverki gegna þessar menntastofnanir í jafnréttisbaráttunni?
Chanel Björk Sturludóttir, baráttu- og fjölmiðlakona, stýrir stafrænni pallborðsumræðu um jafnréttismál.
Einn fulltrúi nemenda frá hverjum háskóla landsins sitja í pallborðinu.
Í lokin mun Stefán Ingvar Vigfússon, uppistandari, ljúka umræðunni og fjalla um jafnréttismálin á sinn einstaka hátt.
Fulltrúar nemenda:
Erlingur Sigvaldason - Háskóli Íslands
Erla Björg Eyjólfsdóttir - Háskólinn á Bifröst
Sigtýr Ægir Kárason - Listaháskóli Íslands
Marion Dellinger - Háskólinn á Hólum
Nökkvi Alexander Rounak Jónsson - Háskólinn á Akureyri
Shalini Shakraborty - Háskólinn í Reykjavík
Ásrún Óskarsdóttir - Landbúnaðarháskóli Íslands
Viðburðurinn er á vegum Háskóla Íslands, Háskólans á Bifröst, Listaháskóla Íslands, Háskólans á Hólum, Háskólans á Akureyri, Háskólans í Reykjavík og Landbúnaðarháskóla Íslands.
Viðburðurinn verður á íslensku og ensku, eftir því sem við á.
Hægt er að panta táknmálstúlkun á viðburði Jafnréttisdaga í HÍ með tölvupósti á adstodarmenn@hi.is.
Viðburðinum verður streymt í gegnum Facebook síðu Jafnréttisdaga.
Jafnréttisdagar 2022
