Mannréttindavarsla á viðsjárverðum tímum: Hlutverk Evrópuráðsins til framtíðar
![Mannréttindavarsla á viðsjárverðum tímum: Hlutverk Evrópuráðsins til framtíðar - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_doktorsv_arngrimur_171102_004.jpg?itok=3b1owLM2)
Aðalbygging
Hátíðarsalur
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins
Bakslag hefur orðið í framþróun mannréttinda í Evrópu og aukning á hatursorðræðu, hatursglæpum og upplýsingaóreiðu hefur átt sér stað á undanförnum árum. Þetta kallar á að aukin áhersla sé lögð á að koma í veg fyrir mismunun gagnvart viðkvæmum hópum til að tryggja lýðræðisleg evrópsk samfélög án aðgreiningar. Algildi mannréttinda er í auknum mæli dregin í efa sem stofnar þeim meginreglum og stöðlum sem sameinað hafa Evrópu undanfarna sjö áratugi í hættu.
Árás Rússa á Úkraínu sýnir að stríð og grimmd tilheyra ekki aðeins fjarlægri fortíð Evrópu. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að ríki Evrópu standi vörð um lýðræðismenningu okkar, stöðugleika og öryggi. Ísland hefur nú tekið við formennsku í Evrópuráðinu og því er við hæfi að skoða hvernig Evrópuráðið hefur stuðlað að vernd mannréttinda og lýðræðis í Evrópu. Mikilvægt er að efla Evrópuráðið svo evrópsk ríki séu tilbúin til að takast á við þær margvíslegu áskoranir sem framundan eru.
Dagskrá
Opnunarorð Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
Opnunarerindi Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
Aðalávarp Marija Pejčinović Burić, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins
Panelumræður
Bjarni Jónsson, formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins og formaður utanríkismálanefndar, Brynhildur Heiðar - og Ómarsdóttir, sérlegur ráðgjafi kvennréttindafélags Íslands, Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakan 78 og Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands og meðlimur í stjórn Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands
Fundarstjóri: Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kveiks
Fundurinn fer fram á ensku, öll velkomin
Frekari upplýsingar um formennsku Íslands í Evrópuráðinu hér www.government.is/coe
Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins
![Mannréttindavarsla á viðsjárverðum tímum: Hlutverk Evrópuráðsins til framtíðar](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/wpjp4.jpg?itok=zN8Xu9fp)