Skip to main content

Mannréttindasáttmálar - hvaða tilgangi þjóna þeir?

Mannréttindasáttmálar - hvaða tilgangi þjóna þeir? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. maí 2023 12:00 til 13:00
Hvar 

Askja

N-131

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins á Íslandi standa Félag stjórnmálafræðinga, Mannréttindastofnun HÍ og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála fyrir hádegisfundi um tilgang og tegundir mannréttindasáttmála og hvaða hlutverki þeir hafa að gegna á 21. öldinni. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 9. maí á milli kl. 12:00 og 13:00 í stofu N-131 í Öskju í Háskóla Íslands.

Framsaga: Audrey Comstock, lektor í stjórnmálafræði við Arizona State University og gestafræðikona við Carr Center for Human Rights Policy í Harvard-háskóla

Umræða: Kári Hólmar Ragnarsson, lektor í lögfræði við Háskóla Íslands

Fundarstjóri: Svanhildur Þorvaldsdóttir, lektor í stjórnmálafræði og opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.

Erindin munu velta upp spurningum um t.d. hvaða tilgangi þjóna mannréttindasáttmálar, hvers vegna skrifa þjóðríki undir mannréttindasáttmála og geta slíkir sáttmálar hjálpað okkur að leysa vandamál 21. aldarinnar?

Viðburðurinn fer fram á ensku, aðgangur er ókeypis og öll velkomin.