Málþing um sjálfræði í lífi fólks með þroskahömlun.
![Málþing um sjálfræði í lífi fólks með þroskahömlun. - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_menntavisindasvid_200904_002.jpg?itok=PEUKSLiQ)
Stakkahlíð / Háteigsvegur
stofa H -207
Menntavísindasvið og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands í samstarfi við Landssamtökin Þorskahjálp boða til málþings um sjálfræði í lífi fólks með þroskahömlun, fimmtudaginn 9. mars. Tilefnið málþingsins er útkoma bókarinnar: Aðstæðubundið sjálfræði. Líf og aðstæður fólks með þroskahömlun. Ritstjórar eru: Ástríður Stefánsdóttir, Guðrún V. Stefánsdóttir og Kristín Björnsdóttir. Bókin er gefin út hjá Háskólaútgáfunni.
Pallborð: Ólafur Snævar Aðalsteinsson fulltrúi Átaks félags fólks með þroskahömlun, Aðalbjörg Traustadóttir, skrifstofustjóri málefna fatlaðs fólks á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Ástríður Stefánsdóttir og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir.
Umræðustjórn: Magnfríður Jóna Kristjónsdóttir nemandi og Kristín Björnsdóttir prófessor á Menntavísindasviði.
Erindi verða tekin upp og birt á vef Siðfræðistofnunar, vef Menntavísindasviðs og vef Þroskahjálpar
Boðið verður upp á veitingar í Skála að málþingi loknu.
Viðburðurinn verður táknmálstúlkaður.
Menntavísindasvið og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands í samstarfi við Landssamtökin Þorskahjálp boða til málþings um sjálfræði í lífi fólks með þroskahömlun, fimmtudaginn 9. mars.
Tilefnið málþingsins er útkoma bókarinnar: Aðstæðubundið sjálfræði. Líf og aðstæður fólks með þroskahömlun. Ritstjórar eru: Ástríður Stefánsdóttir, Guðrún V. Stefánsdóttir og Kristín Björnsdóttir.
Bókin er gefin út hjá Háskólaútgáfunni.
![Málþing um sjálfræði í lífi fólks með þroskahömlun.](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/drr4w.jpg?itok=bPiCsqtz)