Málþing um menntun til farsældar: félags- og tilfinningahæfni í skólastarfi
![Málþing um menntun til farsældar: félags- og tilfinningahæfni í skólastarfi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920__KRI0915_4.jpg?itok=wjET0f8e)
Stakkahlíð / Háteigsvegur
Skriða
Á málþinginu verður fjallað um hvernig efla megi menntun til farsældar í víðum skilningi. Fræðafólk sem er leiðandi á þessu sviði hérlendis og erlendis mun fjalla um mikilvægi félags- og tilfinninghæfni í skólastarfi. Einnig verður kynnt hvernig innleiða megi geðrækt í skólastarf ásamt kynningum á verðlaunaverkefnum sem byggja á nálgun jákvæðrar sálfræði.
Málþingið fer fram í húsakynnum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð og verður einnig í streymi hér
Dagskrá:
15:00:
- Opnunarávarp - Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
- Virðing og umhyggja - hlúð að félags- og tilfinningaþroska æskunnar, Dr. Sigrún Aðalbjarnar, prófessor emeritus, Háskóli Íslands.
- Farsæld sem markmið menntunar, Dr. Kristján Kristjánsson, prófessor, Deputy Director, Jubilee Centre for Character and Virtues
- "Learning to Be, Learning to Live Together”, Dr. Sue Roffey, Director Growing Great Schools Worldwide
- Heilsuhlé
- Geðrækt í skólastarfi, Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri, Mennta- og barnamálaráðuneyti.
Heilsueflandi skólar – vellíðan fyrir alla, Dr. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðstjóri lýðheilsusviðs hjá EL og Kennslustjóri diplómanáms í jákvæðri sálfræði við EHÍ
- Vaxandi: Félags- og tilfinningahæfni í frístundastarfi, Guðrún Kaldal, framkvæmdastjóri, Tjörnin, frístundamiðstöð
- Jákvæð sálfræði í leikskólastarfi, Guðrún Sólveig Vignisdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir, leikskólinn Rauðhóll
- Upright – kennsluefni í félags- og tilfinninghæfni, Viktoría Unnur Viktorsdóttir, kennari.
17:45: Málþingslok.
Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs stýrir málþinginu.
Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Embætti landlæknis og Endurmenntun HÍ standa að viðburðinum.