Málþing: Romani histories and prospects
![Málþing: Romani histories and prospects - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_menntavisindasvid_200904_001.jpg?itok=ku70cmNf)
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Í tilefni af Alþjóðadegi rómískunnar - tungumáli Rómafólks, stendur Vigdísarstofnun fyrir málstofu með þátttöku virtra sérfræðinga í málefnum Rómafólks sem getið hafa sér gott orð fyrir áratugalangan stuðning við rómíska tungu, menningu og mannréttindi.
Hugmyndin með málstofunni er að vekja athygli á farsælum starfsháttum og áskorunum þegar kemur að varðveislu og kynningu á rómanskri tungu og menningu. Einnig verður rætt um leiðir til að deila reynslu þessa stærsta evrópska minnihlutasamfélags, sem sætt hefur ofsóknum og mismunun í aldaraðir, til annarra samfélaga um heim allan.
Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á málefnum minnihlutahópa, mannréttindum, jafnrétti, þjóðerni og verndun tungumála.
Dagskrá
Inngangsorð:
Sofiya Zahova, forstöðumaður Vigdísarstofnunar - alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar
Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor emerita, Háskóla Íslands; Meðlimur í stýrihóp Alþjóðlegs áratugar frumbyggjatungumála - IDIL 2022-2032
Erindi flytja:
Ian Hancock, handhafi heiðursmerkis Breska heimsveldisins (OBE), málvísindamaður og sérfræðingur í málefnum Rómafólks
Fred Taikon, baráttumaður úr hópi Rómafólks, rithöfundur og stjórnarmaður È Romani Glinda
Jana Horvathová, forstöðumaður Safns rómískrar menningar í Brno (Tékklandi)
Umræðustjóri: Shilpa Khatri Babbar, gestaprófessor í indverskum fræðum við Háskóla Íslands
Boðið verður upp á léttar veitingar að málþinginu loknu.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá Vigdísarstofnunar í tilefni Alþjóðlegs áratugar frumbyggjatungumála 2022-2032 og fer fram á ensku.
Málþingið "Romani histories and prospects: What can we learn from a minority language and culture?"
![Málþing: Romani histories and prospects](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/xqxqg.jpg?itok=arqRSutD)