Málþing: Kesara Margrét Anamthawat-Jónsson og litningar plantna
Askja
Stofa 132
Kesara Margrét Anamthawat-Jónsson, prófessor í líffræði varð sjötug árið 2021 og lét þá af störfum við Háskóla Íslands eftir afar farsælan starfsferil. Að því tilefni er efnt til málþings henni til heiðurs. Samstarfsmenn, vinir og fyrrum nemendur munu á málþinginu fjalla um störf hennar og rannsóknir og einnig segja frá persónulegum kynnum og rifja upp skemmtilega atburði.
Dagskrá
14:00. Setning málþingsins – Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra
14:10 Lífshlaup og starfsferill Kesöru – Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ
14:25 Rannsóknir á erfðamengjum plantna, frá birki til melgresis – Sæmundur Sveinsson, fagstjóri Matís
14:40 Rannsóknir á krabbameinum – Sigríður Klara Böðvarsdóttir, forstöðumaður Lífvísindaseturs HÍ
14:55 Framfarir í smásjártækni – Jórunn Erla Eyfjörð, prófessor emeritus við Læknadeild HÍ
15:10 Future crops: genomics and phenotyping to understand drought resilience – Alan Schulman, prófessor við Háskólann í Helsinki
15:35 Námsferðir til Tælands – Jörundur Svavarsson, prófessor emeritus við Líf- og umhverfisvísindadeild HÍ.
15:45 Söngatriði
16:00 Móttaka á 3. hæð Öskju