Málstofa Lífvísindaseturs - Krabbamein á Íslandi
![Málstofa Lífvísindaseturs - Krabbamein á Íslandi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_byggingar_HI_200408_008.jpg?itok=wYui4TkR)
Læknagarður
stofa 201
Málstofa Lífvísindaseturs fimmtudaginn 27. apríl kl. 12:00 í Læknagarði, stofu 201
Nafn: Sigríður Gunnarsdóttir, Forstöðumaður Rannsókna og skráningarseturs Krabbameinsfélags Íslands, prófessor við HÍ og forstöðumaður fræðasviðs í krabbameinshjúkrun við LSH
Titill: Krabbamein á Íslandi, staðan í dag og horfur til framtíðar
Ágrip: Spáð er mikilli fjölgun krabbameinstilfella á heimsvísu á næstu árum og áratugum. Vegna framfara í meðferð krabbameina fjölgar á sama tíma þeim sem lifa eftir krabbameinsgreiningu. Í þessu erindin verður fjallað um framtíðarspá fyrir Ísland, hún borin saman við nágrannalöndin og velt upp hvaða áhrif fjölgun krabbameinstilfella mun hafa á þörf fyrir heilbrigðisþjónustu.
Short bio: Sigríður Gunnarsdóttir er forstöðumaður Rannsókna og skráningaseturs Krabbameinsfélags Íslands. Hún er í samhliða stöðu sem prófessor við Háskóla Íslands og sem forstöðumaður fræðasviðs í krabbameinshjúkrun á Landspítala. Á árunum 2012-2022 starfaði Sigríður sem framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala.
Hún lauk doktorsprófi í hjúkrunarfræði frá University of Wisconsin Madison in 2004, MS prófi í frá sama skóla árið 2000, og BS prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1997.
Sigríður hefur stundað rannsóknir í krabbameinshjúkrun og helstu viðfangsefni hafa verið verkir og einkennameðferð, sálfélagsleg áhrif krabbameina og áhrif krabbameins á fjölskyldur.
Erindið verður flutt á ensku og er öllum opið.
Erindið verður í beinu streymi í Teams: Click here to join the meeting
Sigríður Gunnarsdóttir, Forstöðumaður Rannsókna og skráningarseturs Krabbameinsfélags Íslands, prófessor við HÍ og forstöðumaður fræðasviðs í krabbameinshjúkrun við LSH
![Málstofa Lífvísindaseturs - Krabbamein á Íslandi](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/drbpg.jpg?itok=7bmi0jVf)