Loftslagsmál og útivist

Ferðafélag Íslands, Mörkinni 6
Hvernig getur þú haft áhrif á loftslagsmálin í þinni útivist? Við sem stundum útivist höfum mörg hver séð áhrif loftslagsbreytinga með eigin augum. Hörfandi jöklar og aðrar breytingar á náttúru og veðurfari verða æ sýnilegri með hverju árinu sem líður og því spyrjum við hvernig útivistarfólk getur í auknu mæli látið sig loftslagsmálin varða. Hversu loftslagsvæn er útivist í raun og veru? Hverju þarf að huga að og hvaða skref þurfum við að stíga til að minnka kolefnisspor á fjöllum? Getum við öll verið loftslagsleiðtogar?
Þessum spurningum og mörgum öðrum verður svarað á útivistarkvöldi Loftslagsleiðtogans sem haldið er í samstarfi við Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands og Ferðafélag Íslands. Það verður boðið uppá skemmtilega fyrirlestra og magnaða myndasýningu auk þess sem Andri Snær rithöfundur lokar kvöldinu af sinni alkunnu snilld. Viðburðurinn fer fram fimmtudagskvöldið 3. mars, kl. 20 í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6.
Dagskrá:
Opnun – Anna Dóra Sæþórsdóttir, forseti FÍ og prófessor við HÍ
Virkjaðu þinn innri loftslagsleiðtoga – Vilborg Arna Gissurardóttir, ævintýrakona, ráðgjafi og fyrirlesari
Útivist og loftslagsmál – hvað skiptir máli? Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og fjallahlaupari
Kolefnisspor í útivist – Salome Hallfreðsdóttir, umhverfisfræðingur og útivistarkona
Leiðtogar fyrir loftslagið – kynning á Loftslagsleiðtoganum, leiðtoga- og útivistarnámskeiði fyrir ungt fólk – Matthildur Óskarsdóttir og Emelía Britt Einarsdóttir, loftslagsleiðtogar
Lokaorð frá Andra Snæ Magnasyni, rithöfundi
Kynnir: Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða við Háskóla Íslands
Hvað er Loftslagsleiðtoginn? Loftslagsleiðtoginn er hreyfiafl sem hefur það markmið að hvetja til breytinga í umhverfis- og loftslagsmálum með fræðslu, hnitmiðuðum aðgerðum og valdeflingu einstaklinga sem vilja láta til sín taka í umræðunni um loftslagsmál. Salome Hallfreðsdóttir, Hafdís Hanna Ægisdóttir og Vilborg Arna Gissurardóttir standa að baki verkefninu.
Loftslagsleiðtoginn fékk styrk úr Loftslagssjóði árið 2021.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
Hvernig getur þú haft áhrif á loftslagsmálin í þinni útivist? Hversu loftslagsvæn er útivist í raun og veru? Hverju þarf að huga að og hvaða skref þurfum við að stíga til að minnka kolefnisspor á fjöllum? Getum við öll verið loftslagsleiðtogar? Þessum spurningum og mörgum öðrum verður svarað á útivistarkvöldi Loftslagsleiðtogans sem haldið er í samstarfi við Stofnun Sæmundar fróða við Háskóla Íslands og Ferðafélag Íslands.
