Skip to main content

Loftslagskvíði - Hvernig lifum við með honum?

Loftslagskvíði - Hvernig lifum við með honum?  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. janúar 2023 12:00 til 13:00
Hvar 

Oddi

101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Komdu á hádegisfund Loftslagsleiðtogans og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun þann 25. janúar nk. kl. 12-13 þar sem við munum ræða um loftlagskvíða og leiðir til að lifa með honum. Fundurinn fer fram í stofu Odda 101 í HÍ og er hann ókeypis og öllum aðgengilegur.

Áhyggjur fólks og þá einkum ungs fólks af loftlagsbreytingum af mannavöldum hafa aukist mjög undanfarin ár. Þessar áhyggjur geta verið nýttar til að knýja fram breytingar í loftlagsmálum en þær geta einnig haft hamlandi áhrif á líf fólks og er þá oft talað um loftlagskvíða.

En loftslagskvíði raunverulegur? Geta áhyggjur af loftlagsbreytingum haft neikvæð áhrif? Hvað er hægt að gera til að sporna við loftlagskvíða? Hvernig tökumst við á við loftlagskvíða?

Við viljum sérstaklega hvetja háskólanema til að mæta, hlýða á erindin og taka þátt í fróðlegum og krefjandi umræðum.

Erindi:

Sverrir Norland, rithöfundur

Arnhildur Hálfdánardóttir, dagskrárgerðarmaður hjá RÚV

Umræður:

Eydís Blöndal, ljóðskáld

Katrín Sverrisdóttir, sálfræðingur hjá sálfræðiþjónustu Háskóla Íslands

Úlfur Atli Stefaníuson, háskólanemi og loftlagsleiðtogi

auk Sverris Norlands og Arnhildar Hálfdánardóttur

Fundarstjóri: Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun

Öll velkomin !

Hvað er loftslagsleiðtoginn? 

Loftslagsleiðtoginn er hreyfiafl sem hefur það að markmiði að fræða og valdefla einstaklinga í tengslum við umhverfis- og loftslagsmál. Stærsta verkefni Loftslagsleiðtogans er útivistar- og fræðslunámskeið fyrir ungt fólk á aldrinum 18-25 ára sem felst í fræðslu, leiðangri og leiðtogaþjálfun - sjá: www.instagram.com/loftslagsleidtoginn  

Loftslagsleiðtoginn hlaut styrk frá Loftslagssjóði 2021. 

Loftslagsleiðtoginn og Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun bjóða til hádegisfundar þann 25. janúar um loftlagskvíða og leiðir til að lifa með honum.   Mynd: Ísak Ólafsson

Loftslagskvíði - Hvernig lifum við með honum?