Líf og störf Möðruvallakvenna 1790-1820
![Líf og störf Möðruvallakvenna 1790-1820 - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/gunny_myndirstaerri.jpg?itok=5Xgd8THi)
Árnagarður
Stofa 304
Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur flytur fyrirlestur í Málstofu í félags- og hagsögu sem hún nefnir „Líf og störf Möðruvallakvenna 1790-1820“. Málstofan verður í stofu 304 í Árnagarði, þriðjudaginn 14. febrúar kl. 16:00-17:00.
Líf og störf Möðruvallakvenna 1790-1820
Á tímabilinu 1783–1874 var Möðruvallaklaustur í Hörgárdal höfuðstaður Norðurlands en þar sat amtmaður Norður- og Austuramts. Mikill mannfjöldi bjó og starfaði á amtmannssetrinu en jörðin var líka með þeim stærstu í Eyjafjarðarsýslu. Á árunum 1790 til 1815 hafa fundist nöfn 50 kvenna sem störfuðu á heimili amtmannshjóna til lengri eða skemmri tíma. Margar þeirra eiga áhugaverða sögu sem finna má heimildir um í skjalageymslum Þjóðskjalasafnsins. Í málstofunni verða kynntar fyrstu niðurstöður úr yfirstandandi rannsókn á þessu starfsfólki sem ber stöðuheiti á borð við þjónustustúlkur, stofustúlkur, barnfóstrur, matreiðslukonur, ráðskonur og vinnukonur.
Guðný Hallgrímsdóttir
![Líf og störf Möðruvallakvenna 1790-1820](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/k44bp.jpg?itok=Wto7xubO)