Legokeppnin (Hönnunarkeppni grunnskólanna)

Fer fram á netinu
Legokeppnin "First Lego League Ísland 2021" er hönnunarkeppni grunnskólanna og verður sýnd í streymi laugardaginn 5. febrúar næstkomandi kl.15.00.
Hlekkur á útsendinguna: https://livestream.com/hi/legokeppnin2022
Legokeppnin er venjulega haldin í nóvember á hverju ári í Háskólabíói, þar sem keppnislið mæta og taka þátt í skemmtilegri og spennandi keppni. Samkomutakmarkanir vegna Covid-19 gerðu það að verkum að keppninni var frestað fram yfir áramót og að lokum var hún færð yfir á netið.
Þátttakendur eru nemendur, á aldrum 9-16 ára, frá níu grunnskólum víðs vegar af landinu og samtals eru tíu lið sem taka þátt í keppninni í ár.
Þema ársins eru vöruflutningar (e. Cargo Connect) en keppnin sjálf skiptist í keppnisflokkana: liðsheild, Forritun og hönnun, nýsköpunarverkefni og loks vélmennakappleik.
Í þessari útsendingu er fylgst með liðunum leysa þrautir með Lego-þjarki, á keppnisborði ársins í vélmennakappleik.
í lok útsendingar verða veitt verðlaun í hverjum keppnisflokki auk þess sem krýndir verða FIRST LEGO League meistarar Íslands árið 2021.
Liðið sem hlýtur þann titil hlýtur meðal annars þátttökurétt í skandinavísku FIRST LEGO League keppninni sem áætlað er að fari fram þann 12. mars í Álasundi í Noregi.
Þessi útsending er hluti af dagskrá Háskóla Íslands á UTmessunni sem formlega fer fram þann 25. maí en Háskóli Íslands er einn af samstarfsaðilum UTmessunnar.
Háskóli Íslands heldur utan um keppnina á Íslands ásamt Vísindasmiðju Háskóla Íslands og með stuðningi frá Verkfræðingafélagi Íslands.
Legokeppnin "First Lego League Ísland 2021" er hönnunarkeppni grunnskólanna og verður sýnd í streymi laugardaginn 5. febrúar næstkomandi kl.15.00.
