Læsi er lykill að menntun

Stakkahlíð / Háteigsvegur
Skriða
Ráðstefna um mikilvægi læsis og lesskilnings fyrir menntun og möguleika fólks til þátttöku í samfélaginu. Margaret Snowling og Kate Nation, prófessorar við Oxford háskóla í Bretlandi, eru meðal fremstu vísindamanna heims á þessu sviði. Á ráðstefnunni munu þær fjalla um rannsóknir á læsi og lesskilningi og hvernig megi efla hvort tveggja. Hermundur Sigmundsson, prófessor við Háskóla Íslands og NTNU í Noregi, mun fjalla um áskoranir í íslensku menntakerfi og þróunar- og rannsóknarverkefni sem hafið er í grunnskólanum í Vestmannaeyjum með áherslu á læsi, gróskuhugarfar og námsárangur.
Ráðstefnan fer fram í Skriðu, fyrirlestrarsal Menntavísindasviðs HÍ í Stakkahlíð. Öll hafa tækifæri til að fylgjast með dagskrá ráðstefnunnar í opnu streymi hér: https://livestream.com/hi/laesierlykilladmenntun
Vinsamlega staðfestið þátttöku með skráningu hér: https://bit.ly/3LzHsCQRannsóknasetur um menntun og hugarfar stendur fyrir ráðstefnunni ásamt Háskóla Íslands, með stuðningi sendiráðs Bretlands á Íslandi. Í ráðstefnulok verður Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar og heimasíða setursins opnuð.
- 15:00 Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson setur ráðstefnuna
- 15:05 Ávarp mennta- og barnamálaráðherra - Ásmundur Einar Daðason
- 15:10 Ávarp sendiherra - Bryony Matthew
- 15:15 Áskoranir í íslensku menntakerfi - Hermundur Sigmundsson
- 15:35 Vísindin að baki læsi - Kate Nation
- 16:30 Kaffihlé
- 16:50 Vísindin að baki læsi - Margaret J. Snowling
- 17:40 Allir skipta máli - Jón Pétur Zimsen
- 17:50 Ávarp rektors - Jón Atli Benediktsson
- 17:55 Ávarp háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
- Rannsóknarsetur um menntun og hugarfar formlega opnað.
Ráðstefna um mikilvægi læsis og lesskilnings fyrir menntun og möguleika fólks til þátttöku í samfélaginu. Ráðstefnan fer fram í Skriðu, fyrirlestrarsal Menntavísindasviðs HÍ í Stakkahlíð.
