Kynningarfundur: AWE-nýsköpunarhraðall fyrir konur

Háskóli Íslands stendur í vetur fyrir nýsköpunarhraðli fyrir konur undir merkjum AWE eða Academy for Woman Entrepreneurs í samvinnu við bandaríska sendiráðið á Íslandi. Þetta er í annað sinn sem hraðallinn er haldinn.
Nýsköpunarhraðallinn styður konur við að þróa viðskiptahugmyndir sínar og gerir þeim betur kleift að stofna fyrirtæki á grundvelli þeirra.
Verkefnið er á vegum bandarískra stjórnvalda og er í boði víða um heim. Það samanstendur af netnámskeiðinu Dreambuilder á vegum Thunderbird School of Managament við Ríkisháskólann í Arizona og vinnulotum sem Háskóli Íslands heldur utan um.
Virkjum nýsköpunarkraft kvenna!
Kynningarfundur verður haldinn 30. desember 2021 kl. 12:00 í netstreymi. Skráðu þig á kynningarfund hér.
Kynningarfundurinn í netstreymi.
Eftir kynnningarfundinn verður opnað fyrir umsóknir og rennur umsóknarfrestur út 17. janúar 2022. Sjá nánar.
Kynningarfundur. AWE Nýsköpunarhraðall fyrir konur.
