Kynlífsmyndhvörf og veigrunarorð í Grimmsævintýrum

Oddi
- stofa 201
Viðburðurinn er á vegum námsbrautar í þjóðfræði og safnafræði & Félags þjóðfræðinga á Íslandi.
Fyrirlesari er portúgalski þjóðfræðingurinn Francisco Vaz da Silva en hann er prófessor við ISCTE Instituto Universitário de Lisboa. Eftir hann liggja m.a. bækurnar *Metamorphosis: The Dynamics of Symbolism in European Fairy Tales* (2004) og *Archeology of Intangible Heritage* (2008), en hann hefur ritað fjölda greina um hugfræði, heimsmyndarfræði, ævintýri og ýmsar sögur, siði og sagnaminni: Varúlfa, kokkála, nornir, hamskipti, drekabana, blæðingar, sjöundu börn, Öskubusku og Rauðhettu.
Í fyrirlestrinum verða færð rök fyrir því að ævintýrahefðin byggi á tilbrigðum sem fylgja ákveðnum mynstrum. Hér verða Grimmsævintýrin tekin sem dæmi, en sé rýnt í þau má m.a. greina að allt kynlífið sem Grimmsbræður eru sagðir hafa ritskoðað er þó enn til staðar, en er falið í myndmálinu - fyrir allra augum. Því verður haldið fram að samspil tilbrigðanna í ævintýrahefðinni byggi á myndlíkingum, hvort sem í hlut eiga listævintýri Grimmsbræðra eða alþýðleg ævintýri úr munnlegri hefð.
Francisco Vaz da Silva, prófessor við ISCTE Instituto Universitário de Lisboa.
