Skip to main content

KOMPÁS Þekkingarsamfélagið kynnir Hugtakasafn

KOMPÁS Þekkingarsamfélagið kynnir Hugtakasafn - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
16. mars 2023 13:00 til 14:00
Hvar 

Gróska

Fenjamýri á 1. hæð

Nánar 
Öll velkomin

KOMPÁS Þekkingarsamfélagið býður til opins viðburðar þann 16. mars kl. 13:00-14:00 í fundarsalnum Fenjamýri á 1. hæð Grósku.

Kynnt verður veflausn Hugtakasafnsins sem er samstarfsverkefni fjölda aðila innan sem utan Þekkingarsamfélagsins. Hugtakasafnið er spunnið út frá ferðaþjónustunni en nær jafnframt til þarfa sveitarfélaga, þjónustuaðila, verslunar og þjónustu, auk verndunar íslenskrar tungu. Vefurinn heldur utan um mörg hundruð hugtök og skilgreiningar þeirra. Hugtakasafnið vex og dafnar enn frekar með virku samstarfi og hvetjum við alla til að kynna sér afrakstur vinnunnar og framþróun.

  • Fram koma:
    Kristín Sif Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Atlantik
  • Gunnar Þór Jóhannesson, prófessor í Land- og ferðamálafræði HÍ
  • Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans
  • Sindri Másson og Stefán Orri Eyþórsson, umsjón hugbúnaðar

Fundarstjóri: Björgvin Filippusson, stofnandi KOMPÁS Þekkingarsamfélagsins

Viðburður á Facebook