Íslenskur texti sem gagnaauðlind

VR-II
Stofa 261
Hafsteinn Einarsson, lektor í tölvunarfræði flytur erindið Íslenskur texti sem gagnaauðlind.
Fyrirlesturinn er haldinn af Verkfræðistofnun HÍ.
Ágrip
Segja má að bylting hafi átt sér stað á sviði máltækni á síðustu árum. Þróun tauganetsarkitektúra hefur opnað á ný tækifæri og leitt til betri frammistöðu í textagreiningarverkefnum. Að greina mikið af texta er því ekki endilega hindrun sem þarfnast beinnar aðkomu mannsins. Í þessu erindi ætla ég að segja ykkur stuttlega frá þeim verkefnum sem ég hef verið að vinna að í HÍ sem tengjast meðal annars þróun tauganetslíkana fyrir íslensku og aðlögun slíkra líkana fyrir ýmisleg verkefni. Ef tími gefst mun ég einnig fara yfir framtíðarsýn og tækifæri á þessu sviði.
Hafsteinn Einarsson, lektor í tölvunarfræði
