Skip to main content

Innrásin í Úkraínu

Innrásin í Úkraínu - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. mars 2022 12:00 til 13:15
Hvar 

Askja

N-132

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag stjórnmálafræðinga standa fyrir opnum fundi um innrás Rússlands í Úkraínu og þær afleiðingar sem innrásin hefur fyrir öryggi í Evrópu.

Flemming Splidsboel Hansen, sérfræðingur hjá dönsku alþjóðamálastofnuninni (DIIS) með áherslu á Rússland, Úkraínu og Hvíta-Rússland, tekur þátt í fundinum gegnum fjarfundarbúnað.

Í pallborði sitja Jón Ólafsson, prófessor í menningarfræði, Rósa Magnúsdóttir, prófessor í sagnfræði, Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir, doktorsnemi, Andrei Menshenin, blaðamaður auk Baldurs Þórhallssonar, prófessors í stjórnmálafræði, sem tekur einnig þátt í umræðum í gegnum fjarfundarbúnað.

Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Fundinum verður jafnframt streymt á Facebooksíðu Alþjóðamálastofnunar. 