Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir í þéttbýli
Norræna húsið
Eru náttúra og borgarumhverfi andstæður eða er náttúra í borg lykillinn að betra lífi? Hvað eru blágrænar ofanvatnslausnir?
Verið velkomin á viðburðinn "Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir í þéttbýli", sem haldinn verður á lýðræðishátíðinni Fundi fólksins í Norræna húsinu laugardaginn 17. september n.k. kl. 13:00-13:40. Málþingið er haldið af Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands í samstarfi við Norræna húsið.
Borgarumhverfi og innviðir borga eru viðkvæm fyrir öfgum í veðurfari, svo sem flóðum og fellibyljum. Um leið hefur borgarumhverfi gjarnan neikvæð umhverfisáhrif sem sjá má til dæmis sjá á „hitaeyjum“ í borgum, aukinni mengun og tapi á líffræðilegri fjölbreytni. Hvernig getum við dregið úr þessum neikvæðu áhrifum og skapað borgarrými sem vinnur með náttúrunni en ekki á móti henni? Það verður sífellt ljósara að náttúrumiðaðar lausnir eru lykilatriði í því að draga úr og aðlagast loftslagsbreytingum.
Erindi:
Halldóra Hreggviðsdóttir, Framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Alta. Blágrænir innviðir í bæjum - Gróðurríkari byggð.
Hrund Ólöf Andradóttir, Prófessor í umhverfisverkfræði
Blágrænir innviðir og sjálfbærar borgir.
Pallborð:
Björn Hauksson, fulltrúi Náttúruvina Reykjavíkur, nýrra hagsmunasamtaka grænna svæða í Reykjavík
Marianne Jensdóttir Fjeld, verkefnastjóri vatnamála hjá Umhverfisstofnun
Þórólfur Jónsson, deildarstjóri náttúru og garða á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar
Katrín Oddsdóttir stýrir umræðum.
Málþingið er hluti af viðburðaröðinni „Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir og áhrif þeirra í víðara samhengi.“
Í ár eru náttúrumiðaðar lausnir þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og markmiðið með viðburðaröðinni er að varpa ljósi á náttúrumiðaðar lausnar og innleiðingu þeirra á Norðurlöndunum.
Einnig verður hægt að fylgjast með beinu streymi, fylgist með á https://vimeo.com/event/2428243
Eru náttúra og borgarumhverfi andstæður eða er náttúra í borg lykillinn að betra lífi? Hvað eru blágrænar ofanvatnslausnir? Verið velkomin á viðburðinn "Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir í þéttbýli", sem haldinn verður á lýðræðishátíðinni Fundi fólksins í Norræna húsinu laugardaginn 17. september n.k. kl. 13:00-13:40. Málþingið er haldið af Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands í samstarfi við Norræna húsið. Borgarumhverfi og innviðir borga eru viðkvæm fyrir öfgum í veðurfari, svo sem flóðum og fellibyljum. Um leið hefur borgarumhverfi gjarnan neikvæð umhverfisáhrif sem sjá má til dæmis sjá á „hitaeyjum“ í borgum, aukinni mengun og tapi á líffræðilegri fjölbreytni. Hvernig getum við dregið úr þessum neikvæðu áhrifum og skapað borgarrými sem vinnur með náttúrunni en ekki á móti henni? Það verður sífellt ljósara að náttúrumiðaðar lausnir eru lykilatriði í því að draga úr og aðlagast loftslagsbreytingum. Erindi:Halldóra Hreggviðsdóttir, Framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Alta. Blágrænir innviðir í bæjum - Gróðurríkari byggð. Hrund Ólöf Andradóttir, Prófessor í umhverfisverkfræðiBlágrænir innviðir og sjálfbærar borgir. Pallborð: Björn Hauksson, fulltrúi Náttúruvina Reykjavíkur, nýrra hagsmunasamtaka grænna svæða í Reykjavík Marianne Jensdóttir Fjeld, verkefnastjóri vatnamála hjá Umhverfisstofnun Þórólfur Jónsson, deildarstjóri náttúru og garða á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar Katrín Oddsdóttir stýrir umræðum. Málþingið er hluti af viðburðaröðinni „Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir og áhrif þeirra í víðara samhengi.“ Í ár eru náttúrumiðaðar lausnir þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og markmiðið með viðburðaröðinni er að varpa ljósi á náttúrumiðaðar lausnar og innleiðingu þeirra á Norðurlöndunum. Einnig verður hægt að fylgjast með beinu streymi, fylgist með https://vimeo.com/event/2428243