Hvað er norræn nýlendustefna og hvers vegna skiptir hún máli í dag?
Oddi
101
Þátttaka Norðurlanda í nýlenduverkefnum hefur verið skoðuð með gagnrýnum hætti síðastliðna áratugi, þar sem fræðifólk hefur skoðað á hvaða hátt norræn ríki og fólk innan Norðurlandanna hafa verið hluti af nýlendu- og heimsvaldastefnu. Í þessu pallborði er velt upp með nokkrum stuttum innleggjum hvernig skilja má nýlendustefnu í samhengi Norðurlandanna og af hverju hún skiptir máli í nútímanum.
Verið öll velkomin að hlýða á þessar stuttu kynningar og taka þátt í umræðum á eftir.
Viðburður fer fram á ensku.
Fundarstjóri:
Ólafur Rastrick, deildarforseti félags-, mannfræði- og þjóðfræðideildar
Þátttakendur í pallborði:
Janne Lahti, University of Helsinki
Kristín Loftsdóttir, Háskóli Íslands
Rinna Kullaa, Tampere University
John Hennessey, Lund University
Johan Höglund, Linnaeus University
Laura Junka-Aikio, University of Lapland
Viðburðurinn er hluti af verkefninu Nordic Colonialism and the Global, undir forystu Janne Lahti, og styrkt af NOS-HS, https://blogs.helsinki.fi/nordic-colonialism/