Hvað er að vera Íslendingur?
![Hvað er að vera Íslendingur? - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_haskolinn_200220_005.jpg?itok=ixZcF4lM)
Hús Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8
Fræðslufundur fyrir almenning í húsi Íslenskrar erfðagreiningar, laugardaginn 29. apríl kl. 13.
Dagskrá
Agnar Helgason, mannerfðafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands: Hvað er Íslendingur: Erfðafræðileg sýn
Miriam Petra Ómarsdóttir Awad, verkefnastýra hjá Rannís:
Hvenær er maður eiginlega orðinn Íslendingur?
Tengist þjóðarsjálfsmyndin ómeðvitað eiginleikum sem er frekar hægt að henda reiður á þegar fólk talar um hvaða fólk sé ekki íslenskt?
Þorvaldur Friðriksson rithöfundur: Það keltneska í hinu íslenska
Sérkenni og siðir Íslendinga með hliðsjón af þætti Kelta í landnámi Íslands
Kári Stefánsson: Hvað er að vera Íslendingur?
Skarast hugmyndir þjóðarinnar, um uppruna sinn, á við uppgötvanir á sviði mannerfðafræði?
Boðið er upp á kaffi og kleinur í anddyri fyrir fundinn. Öll hjartanlega velkomin.
Fræðslufundur fyrir almenning í húsi Íslenskrar erfðagreiningar, laugardaginn 29. apríl kl. 13.
![Hvað er að vera Íslendingur?](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/qbxad.jpg?itok=BGnpcnrg)