Hugvísindaþing - seinni dagur
![Hugvísindaþing - seinni dagur - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/hugvisthing2023_0.jpg?itok=pjVH_Egg)
Hvenær
11. mars 2023 10:00 til 17:00
Hvar
Nánar
Aðgangur ókeypis
Hugvísindaþing 2023 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 10. og 11. mars. Á Hugvísindaþingi er borið fram það helsta í fræðunum í stuttum fyrirlestrum og málstofum ætluðum fræðasamfélaginu jafnt sem almenningi. Meðal þess sem fjallað verður um í ár er bókmenntagagnrýni, táknmál, Austurland, guðsmyndir, grýla, hetjur, ríkisvaldið, orðaforði, rímur og stafrænar skemmtanir. Sjá nánar á vef þingsins.
Málstofur fara fram í Árnagarði, Lögbergi og Odda og verður dagskráin birt á síðu þingsins innan skamms. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Verið velkomin á Hugvísindaþing!
Hugvísindaþing 2023 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 10. og 11. mars.
![Hugvísindaþing - seinni dagur](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/9jp5a.jpg?itok=36lE82Gq)