Skip to main content

Höfum við efni á barnafátækt?

Höfum við efni á barnafátækt? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
26. mars 2022 13:00 til 15:00
Hvar 

Hús Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Afhverju eru börn rukkuð fyrir leikskóla, skólamáltíðir, tónlistarnám og frístundir? Hvað myndi kosta að losa öll börn á Íslandi undan fjárhagsáhyggjum? Þetta er umræðuefnið á málþingi Velferðarsjóðs barna, laugardaginn 26. mars, sem nefnist: Höfum við efni á barnafátækt?

Prófessorarnir Tinna Laufey Ásgeirsdóttir og Gylfi Zoega, kynna til sögunnar skýrslu sem var unnin fyrir Velferðarsjóðinn um ójöfnuð meðal íslenskra barna. Þetta er í fyrsta sinn sem gini-stuðull barna er fundinn út.

Málþingið er haldið til minningar um Valgerði Ólafsdóttur þroskasálfræðing, stofnanda og fyrrverandi framkvæmdastjóra Velferðarsjóðs barna sem féll frá í nóvember, í fyrra. Það er haldið í húsi Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8, 102 Reykjavík og stendur frá 13:00 til 15:00.

Allir eru velkomnir en boðið er uppá kaffiveitingar frá 12.30

Dagskrá
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir og Gylfi Zoega prófessorar við HÍ
Ójöfnuður meðal íslenskra barna – staða og mögulegar leiðir

Ásta Þórdís Skjaldal samhæfingarstjóri PEPP
Að alast upp í fátækt

Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar
Tómstundir barna – mismunun hvert leiðir hún

Kolbeinn Stefánsson dósent við félagsráðgjafadeild HÍ
Eru börn fjárfesting eða útgjöld?

Pallborð – Kári Stefánsson, stjórnarformaður Velferðarsjóðs barna stýrir umræðum

Viljum við að öll börn fái jöfn tækifæri? Og hvað má það kosta?
Þátttakendur:
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir prófessor
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði

Afhverju eru börn rukkuð fyrir leikskóla, skólamáltíðir, tónlistarnám og frístundir? Hvað myndi kosta að losa öll börn á Íslandi undan fjárhagsáhyggjum? Þetta er umræðuefnið á málþingi Velferðarsjóðs barna, laugardaginn 26. mars, sem nefnist: Höfum við efni á barnafátækt?

Höfum við efni á barnafátækt?