Hlutverk og framtíðarskipan ákæruvaldsins
Lögberg
Stofa 101
Hlutverk og framtíðarskipan ákæruvaldsins. Málþing í tilefni af 60 ára afmæli embættis ríkissaksóknara. Embætti ríkissaksóknara og Lagastofnun Háskóla Íslands efna til málþings fimmtudaginn 12. maí nk. í tilefni af 60 ára afmælis embættis ríkissaksóknara
Setning málþings og fundarstjórn
Kristín Benediktsdóttir dósent og formaður stjórnar Lagastofnunar
Erindi:
Hlutverk embættis ríkissaksóknara
Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari
Framtíðarskipan ákæruvalds með hliðsjón af kröfu um sjálfstæði og óhæði
Jón HB. Snorrason, saksóknari og aðjúnkt við Lagadeild Háskóla Íslands
Að loknum erindum taka við pallborðsumræður með frummælendum ásamt Dagmar Ösp Vésteinsdóttur, formanni Ákærendafélags Íslands, Fjölni Sæmundssyni, formanni Landssambands lögreglumanna og Páleyju Borgþórsdóttur, formanni Lögreglustjórafélags Íslands
Málþingið verður haldið í Háskóla Íslands, Lögbergi stofu 101, kl. 13:30-16:00.
Boðið verður upp á léttar veitingar að málþinginu loknu.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Hlutverk og framtíðarskipan ákæruvaldsins. Málþing í tilefni af 60 ára afmæli embættis ríkissaksóknara.