Skip to main content

Hin asíska ímyndun í íslensku samfélagi

Hin asíska ímyndun í íslensku samfélagi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. apríl 2023 17:30 til 18:30
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 007

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Óformlegar umræður með Wei Lin og Elizabeth Lay um ólík sjónarhorn þeirra á að búa á Íslandi sem kínversk/íslenskur tónlistarmaður og kínversk-amerískur menntafræðingur, sérstaklega í kjölfar opinberrar gagnrýni á uppsetningu Íslensku óperunnar á Madame Butterfly. Viðbrögð frá asísku samfélagi, listasamfélagi og almenningi hafa afhjúpað erfitt og flókið samband milli viðurkenningar Asíubúa á Íslandi og (skorts á) fulltrúum þeirra í listum. Þær munu deila reynslu sinni og hugmyndum um hvernig íslenskar stofnanir geta skapað betra umhverfi fyrir alla til að viðurkenna fjölbreytileika íbúa þess.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku, í stofu 007 í Veröld - húsi Vigdísar, fimmtudag 13. apríl kl.17:30.

Kínversk-íslenska menningarfélagið og Konfúsíusarstofnunin Norðurljós standa fyrir viðburðinum. Nánari upplýsingar um Wei Lin og Elizabeth Lay má finna á vef Kínversk-íslenska menningarfélagsins.

Boðið er upp á léttar veitingar og hvatt til umræðna, verið öll velkomin.  

Wei Lin og Elizabeth Lay.

Hin asíska ímyndun í íslensku samfélagi