Háskóladagurinn á Ísafirði
Menntaskólinn á Ísafirði
Fimmtudaginn 24. mars verður kynning á vegum Háskóladagsins í Menntaskólanum á Ísafirði kl. 10.30 – 12.30. Nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og starfsfólk allra háskóla landsins verða reiðubúnir til að spjalla við gesti á kynningunni.
Háskólar landsins hafa um árabil staðið sameiginlega fyrir Háskóladeginum í Reykjavík og jafnframt haldið námskynningar undir hatti Háskóladagsins á völdum stöðum úti á landi en undanfarin tvö ár hafa allar slíkar kynningar eingöngu verið á netinu vegna kórónuveirufaraldursins. Þar sem öllum samkomutakmörkunum hefur nú verið aflétt í landinu og til þess að gefa áhugasömum færi á milliliðalausu spjalli við fulltrúa háskólanna standa skólarnir sjö fyrir þremur viðburðum næstu vikuna.
Laugardaginn 19. mars verður Háskóladagurinn á Akureyri haldinn í Háskólanum á Akureyri (HA) kl. 12-15.
Mánudaginn 21. mars verður Háskóladagurinn með kynningu í Menntaskólanum á Egilsstöðum kl. 10.30-12.30.
Sem fyrr eru öll áhugasöm velkomin á kynningarnar.