GPMLS öndvegisfyrirlestur - Prófessor Jóhann Elí Guðjónsson

Fróði, Sturlugata 8 (hús íslenskrar erfðagreiningar)
Dr. Jóhann Elí Guðjónsson, MD PhD, er Arthur C. Curtis prófessor í sameindaónæmisfræði húðar, prófessor í húðlæknisfræði og fræðimaður við Taubman Medical Research stofnunina við Michigan Háskóla.
Prófessor Jóhann Elí Guðjónsson mun halda fyrirlestur í öndvegisfyrirlestrarröð GPMLS og ber fyrirlesturinn heitið Notkun einfrumu- og rúmraðgreiningar (e. spatial-sequencing) í rannsóknum bólgusjúkdóma húðar.
Fyrirlesturinn fer fram í Fróða fyrirlestrarsal, Sturlugötu 8 (Hús íslenskrar erfðagreiningar).
Rannsóknir Jóhanns snúa helst að ónæmisfræðilegum og erfðafræðilegum rannsóknum á krónískum bólgusjúkdómum í húð. Hann hefur birt yfir 180 ritrýndar greinar og hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir rannsóknir sínar. Hér má nálgast frekari upplýsingar um rannsóknir Jóhanns.
Prófessor Jóhann Elí Guðjónsson MD, PhD
