Gjaldþrot Íbúðalánasjóðs
![Gjaldþrot Íbúðalánasjóðs - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/gimli.jpg?itok=LAp-I7d9)
Hvenær
4. nóvember 2022 11:00 til 12:00
Hvar
Oddi
312
Nánar
Aðgangur ókeypis
Málstofa Hagfræðistofnunar.
Fyrirlesari er Hersir Sigurgeirsson, dósent í fjármálum.
Fjölmargar spurningar hafa vaknað í kjölfar kynningar fjármálaráðherra á tillögum að uppgjöri skulda ÍL-sjóðs.
Jafngilda tillögurnar greiðslufalli ríkissjóðs?
Hafa þær áhrif á lánshæfi ríkissjóðs?
Hvað þýða tillögurnar fyrir lífeyrissjóði og aðra eigendur íbúðabréfa?
Þarf að skerða réttindi sjóðsfélaga lífeyrissjóða ef þær ná fram að ganga?
Í erindinu setur Hersir fram hugleiðingar sínar um þessar spurningar og hugsanlega einhverjar fleiri.
Hersir Sigurgeirsson, dósent í fjármálum
![Gjaldþrot Íbúðalánasjóðs](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/73dax.jpg?itok=GuFmZUOo)