Skip to main content

Frestað: Þjóðfræði handan þess mannlega

Frestað: Þjóðfræði handan þess mannlega - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. mars 2022 15:00 til 16:00
Hvar 

Oddi

Stofa 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Viðburði hefur verið frestað. Ný dagsetning auglýst síðar.

Fyrirlesari: Tok Thompson, prófessor í þjóðfræði og mannfræði við University of Southern California

Getur api gert tilkall til ljósmyndar af sér?

Geta gervimenni átt einhvern þegnrétt? Spurningar á borð við þessar tilheyra ekki lengur bara vísindaskáldskap. Í fyrirlestrinum verða færð rök fyrir því að þjóðfræðin sé í lykilstöðu til að takast á við spurningar af þessum toga, en um leið þurfi að útvíkka sjóndeildarhring fagsins þannig að það taki líka til ómennskra gerenda. Í pósthúmanisma fléttast saman tveir meginþræði: annar þeirra skoðar gráa svæðið milli mennskra og ómennskra dýra, hinn tækni, gervigreind og sæborgir og stöðu þeirra í menningu og samfélagi manna. Þjóðfræði handan þess mannlega tekur þessa þræði saman og rannsakar breyttan skilning á mennskunni og stöðu mennskra dýra í gegnum tjáningu og athafnir daglegs lífs.

Viðburðurinn er á vegum námsbrautar í þjóðfræði og safnafræði og Félags þjóðfræðinga á Íslandi.

Tok Thompson, prófessor í þjóðfræði og mannfræði við University of Southern California

Þjóðfræði handan þess mannlega