Skip to main content

Framþróun gervifóta með hálfvirkum (semi-active) búnaði og rafeindatækni

Framþróun gervifóta með hálfvirkum (semi-active) búnaði og rafeindatækni - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. febrúar 2022 15:00 til 16:00
Hvar 

VR-II

Stofa 258

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Streymi

Dr. Peter G. Adamczyk, dósent við Vélaverkfræðideild Háskólans í Wisconsin – Madison flytur fyrirlesturinn Framþróun gervifóta með hálfvirkum (semi-active) búnaði og rafeindatækni (Advancing Prosthetics with Semi-Active Mechanisms and Real-World Instrumentation)

Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Verkfræðistofnunar

Ágrip

Hönnun hefðbundna gervifóta tekur tillit til hinna ýmsu athafna notandans en henta misvel við þær athafnir. Stoðtæki með aflgjafa geta virkað vel en eru líka dýr og flókin.

Í þessari kynningu verður fjallað um hugmyndir og útfærslur á hálfvirkum (semi-active) gervifótum, sem miða að því að bæta aðlögunarhæfni og fjölhæfni þeirra með lágmarks viðbót við þyngd, hæð, aflþörf og kostnað.

Önnur áskorun á sviðinu er að skilja hvernig mismunandi tæki gagnast við notkun. Í seinni hluta kynningarinnar verður fjallað um lykilþætti þessarar áskorunar og nýlegar tilraunir með innfeldum (wearable) skynjurum til að auka skilninga á stoðtækjunum og virkni þeirra úr gögnum sem safnað er við venjulega hreyfingu.

Dr. Peter G. Adamczyk, dósent við Vélaverkfræðideild Háskólans í Wisconsin – Madison

Framþróun gervifóta með hálfvirkum búnaði og rafeindatækni