Skip to main content

Fólk og fátækt. Lokaðar dyr og valdleysi

Fólk og fátækt. Lokaðar dyr og valdleysi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. febrúar 2022 13:00 til 14:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í málstofunni verður fjallað um fátækt í samhengi við stöðu einstæðra foreldra, innflytjenda og barna út frá stefnumótun, jaðarsetningu og valdaleysi. Við munum nálgast viðfangsefnið bæði frá sjónarhorni fræðanna en einnig út frá sjónarhorni aðgerðasinna í réttindabaráttu fólks sem býr við fátækt.

Málstofan samanstendur af fjórum erindum og umræðum.

Þátttakendur:Kolbeinn Hólmar Stefánsson, félagsfræðingur, dósent við félagsráðgjafardeild HÍ: Stefna og málefni einstæðra foreldra

Hervör Alma Árnadóttir, félagsráðgjafi, dósent við félagsráðgjafadeild HÍ. Börn og fátækt: Áhrif öra flutninga á félagslega stöðu barna

Guðbjörg Ottósdóttir, félagsráðgjafi, dósent við félagsráðgjafadeild HÍ
Innflytjendur og fátækt: Upplifun barna af fátækt

Ásta Þórdís Skjalddal, samhæfingarstjóri PEPP Ísland, grasrót fólk í fátækt: Staða einstæðra foreldra- lokaðar dyr og valdleysi.

Hervör Alma Árnadóttir stýrir málstofunni.

Viðburður á vegum Félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands í samstarfi við Pepp á Íslandi - samtök fólks í fátækt.

Viðburðurinn verður á íslensku og streymt á Facebook síðu Jafnréttisdaga.

Jafnréttisdagar 2022

Fólk og fátækt. Lokaðar dyr og valdleysi