Skip to main content

Fjármögnun háskóladeilda innan deililíkans Háskóla Íslands

Fjármögnun háskóladeilda innan deililíkans Háskóla Íslands  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
25. febrúar 2022 11:00 til 12:00
Hvar 

Lögberg

103

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Fyrirlesari: Þórólfur Matthíasson prófessor

Geta deildarfundir og deildarforsetar haft áhrif á tekjur og afkomu deilda sinna? Hvernig er tekjulíkan deilda innan Háskóla Íslands uppbyggt í grófum dráttum? Hvað ræður útgjöldunum?

Hvaða svigrúm hafa deildarfundir og deildarforsetar til að bregðast við afkomubresti? Hefur deililíkanið áhrif á uppbyggingu náms við deildir?

Hvaða deildir geta boðið upp á mikla nánd milli kennara og nemenda?

Hvaða deildir þurfa að styðjast við fjölmenna fyrirlestra og takmarka aðgang nemenda að kennurum?  Þetta eru nokkrar lykilspurningar sem ástæða er til að leita svara við. Notast er við gögn úr gagnagrunni HÍ til að gefa hugmynd um almenn svör við ofangreindum spurningum.

Vefslóð á Zoomhttps://eu01web.zoom.us/my/ioes1

Fjármögnun háskóladeilda innan deililíkans Háskóla Íslands Fyrirlesari: Þórólfur Matthíasson

Fjármögnun háskóladeilda innan deililíkans Háskóla Íslands