Fékk einokunarverslunin ósanngjörn eftirmæli?
Árnagarður
Stofa 311
Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræði- stofnunar Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur á Málstofu í félags- og hagsögu sem hann nefnir „Fékk einokunarverslunin ósanngjörn eftirmæli?“ Lengi vel hlaut einokunar- verslunin slæm eftirmæli en á seinni árum hafa fræðimenn haldið því fram að sú afstaða beri merki baráttunnar fyrir sjálfstæði frá Dönum og að rétt sé að endurskoða hana. Málið verður skoðað í ljósi reynslunnar af einokun hér og annars staðar.
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 311 í Árnagarði, þriðjudaginn 20. september og hefst kl. 16:00. Verið öll velkomin.
Hægt er að nálgast dagskrá Málstofu í félags- og hagsögu á haustmisseri vef Sagnfræðistofnunar. Málstofan er umræðuvettvangur fyrir hvers konar efni í félags- og hagsögu á hvaða tímabili sem er. Hún er með óformlegu sniði þar sem fólki gefst tækifæri til að kynna rannsóknir sínar, verk í vinnslu jafnt sem útgefin verk, prófa nýjar hugmyndir og kenningar eða taka fyrri rannsóknir til gagnrýnnar skoðunar. Á eftir framsögum er gefinn góður tími til fyrirspurna og almennra umræðna. Málstofan er á vegum kennara í sagnfræði og viðskiptafræði í Háskóla Íslands og umsjón hafa sagnfræðiprófessorarnir Erla Hulda Halldórsdóttir, Guðmundur Jónsson og Ragnheiður Kristjánsdóttir og Sveinn Agnarsson, prófessor í viðskiptafræði.
Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræði- stofnunar Háskóla Íslands.