Febrúarbrautskráning 2023
![Febrúarbrautskráning 2023 - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/kri_brautskraning_220625_043.jpg?itok=sX78Jf69)
Hvenær
17. febrúar 2023 15:00 til 16:30
Hvar
Háskólabíó
Nánar
Prófskírteini verða afhent í röð eftir fræðasviðum
Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói föstudaginn 17. febrúar kl. 15. Kandídatar fá þá afhent prófskírteini sín við hátíðlega athöfn.
Athöfnin verður einnig í streymi
Kandídötum er ætlað afmarkað svæði og eru beðnir um að mæta ekki síðar en kl. 14. Hver kandídat verður með númerað sæti sem kemur fram á nafnalista sem afhentur verður með dagskrá við innganginn og er sætaskipan í samræmi við afhendingu prófskírteina. Umsjónarfólk verður á staðnum til að leiðbeina um sætaskipan.
Prófskírteini verða afhent í röð eftir fræðasviðum:
- Félagsvísindasvið
- Heilbrigðisvísindasvið
- Hugvísindasvið
- Menntavísindasvið
- Verkfræði- og náttúruvísindasvið.
Febrúarbrautskráning kandídata frá Háskóla Íslands fer fram í Háskólabíói föstudaginn 17. febrúar kl. 15. Kandídatar fá þá afhent prófskírteini sín við hátíðlega athöfn.
![Febrúarbrautskráning 2023](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4x2kk.jpg?itok=96-rWVZC)