Skip to main content

Falin nýsköpun: Hlutverk skapandi greina í mótun hagkerfa og samfélaga

Falin nýsköpun: Hlutverk skapandi greina í mótun hagkerfa og samfélaga  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
27. október 2022 12:00 til 13:00
Hvar 

Gróska

Ská á móti stóra Gróðurveggnum

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst og Félagsvísindasvið Háskóla Íslands standa sameiginlega að hádegisfyrirlestri í Grósku,fimmtudaginn 27. október nk. í aðdraganda Þjóðarspegils. Fyrirlesarinn er ástralski fræðimaðurinn Stuart Cunningham sem er best þekktur fyrir rannsóknir sínar á og kenningar um menningu og skapandi greinar. Hann er staddur á landinu í tengslum við ráðgjafavinnu í undirbúning stofnunar Rannsóknarseturs skapandi greina.  

Fyrirlestur Cunningham fjallar um þá huldu nýsköpun sem býr í skapandi greinum.  

Cunningham mun leggja út frá hugtakinu „tveir menningarheimar” sem varð til fyrir yfir 60 árum hjá vísindamanninum og rithöfundinum C.P. Snow. Snow vildi þannig lýsa muninum sem er á heimssýn og aðferðum vísindamanna annars vegar og skapandi greina hins vegar. Þessi mismunur hefur leitt til þess að nýsköpunarkerfi og nýsköpunarstefna hafa um áratuga skeið snúist um vísindi, verkfræði, tækni og læknisfræði og þær atvinnugreinar sem byggja á þeim. Hugvísindi, listir og félagsvísindi hafa í besta falli verið í aukahlutverki og framlag þeirra hefur ekki sést í rannsóknaráætlunum, stefnumótun og áætlanagerð né verið viðurkennt hjá almenningi. Skipulagsbreytingar í þróuðum hagkerfum og samfélögum hafa smám saman leitt til þess að þjónustuiðnaður og skapandi greinar hafa fengið aukið vægi sem drifkraftur í nýsköpun. Í erindi sínu tekur Cunningham dæmi um þetta. 

Stuart Cunningham er staddur á Íslandi í tengslum við undirbúning á stofnun Rannsóknarseturs skapandi greina þarsem hann hefur sinnt ráðgjafahlutverki, ásamt teymi sínu.  

Dr. Stuart Cunningham er prófessor við emeritus Queenslands University of Technology í Ástralíu og leiðandi fræðimaður í heiminum á sviði menningar og skapandi greina. Cunningham hefur skrifað eða verið meðhöfundur 15 bóka, 25 skýrslna og yfir 200 ritrýndra greina og bókarkafla auk þess að hafa skrifað fjölda almennra greina. Hann hefur hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga og æðstu  orðu ríkisins Ástralíu fyrir fræðistörf sín.

Hægt er að fylgjast með beinu streymi hér.

Dr. Stuart Cunningham er prófessor við emeritus Queenslands University of Technology í Ástralíu og leiðandi fræðimaður í heiminum á sviði menningar og skapandi greina.

Falin nýsköpun: Hlutverk skapandi greina í mótun hagkerfa og samfélaga