Erasmus+ styrkir til landa utan Evrópu
Hvenær
11. nóvember 2022 12:00 til 12:40
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
VHV-007
Nánar
Aðgangur ókeypis
Alþjóðasvið kynnir möguleika á styrkjum úr Alþjóðavídd Erasmus+ en starfsfólk HÍ getur sótt um ferða- og dvalarstyrki fyrir starfsfólk og nemendur á grundvelli samstarfs við háskóla utan Evrópu.
Þessi hluti Erasmus+ áætlunarinnar, sem er kölluð „alþjóðavídd“ er frábrugðin hefðbundnu Erasmus+ áætluninni innan Evrópu. Auglýst er eftir umsóknum einu sinni á ári og næsti umsóknarfrestur verður 15. janúar 2023.
Þau sem ekki sjá sér fært að mæta á kynningu en vilja fræðast um styrkina er bent á að senda fyrirspurn á erasmus.international@hi.is.
Kynningin er hluti af dagskrá Alþjóðadaga 8.-11. nóvember og verður á ensku.
Kynningin er hluti af dagskrá Alþjóðadaga 8.-11. nóvember.