Erasmus+ fyrir öll: Inngilding og jöfn tækifæri til námsdvalar erlendis

Í nýrri Erasmus+ áætlun 2021-2027 er lykilmarkmið að tryggja jafnari tækifæri háskólanema til skiptináms og starfsþjálfunar erlendis. Á málstofunni sem Alþjóðasvið Háskóla Íslands og Alþjóðaskrifstofa Háskólans í Reykjavík standa sameiginlega að, verður fjallað um áherslu á inngildingu (e. inclusion) og fjölbreytileika og leiðir til að ná betur til hópa sem mæta hindrunum t.d. af heilsufarslegum, landfræðilegum eða félagslegum ástæðum og hafa ekki nýtt sér áætlunina.
Miriam Petra Ómarsdóttir Awad, sérfræðingur á mennta- og menningarsviði Rannís, kynnir inntak inngildingar í áætluninni og ræðir um mikilvægi inngildandi hugarfars og aðgengilegra upplýsinga.
Stefanía Valdimarsdóttir, nemandi við HÍ, sem nú stundar skiptinám við Háskólann í Lundi, segir frá því hvernig viðbótarstyrkur fyrir nemendur með börn á framfæri hefur gert henni kleift að taka hluta af náminu erlendis.
Viðburðurinn fer fram í gegnum Zoom - https://eu01web.zoom.us/j/67521647778 og er á íslensku.
Jafnréttisdagar 2022.
