Er Ísland að drukkna í flóttafólki?
![Er Ísland að drukkna í flóttafólki? - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_lyfjafraedi_200910_001.jpg?itok=BGC_l6vy)
Askja
Stofa 132
Opinn hádegisfundur á vegum Höfða friðarseturs, Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands í stofu N-132 í Öskju. Streymt verður frá fundinum.
Móttaka fólks á flótta hefur verið áberandi í umræðunni á síðustu dögum og því verið fleygt fram að ástandið sé stjórnlaust. Þá hefur því einnig verið haldið fram að á Ísland séu rýmri reglur en hjá nágrannalöndum okkar og nauðsynlegt sé að herða reglur hér á landi til að koma í veg fyrir misnotkun á kerfinu. En hvað myndi það þýða að takmarka aðgengi að landinu og hvernig rímar það við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands þegar kemur að móttöku flóttafólks? Hvaða breytingar eru boðaðar í nýju frumvarpi til útlendingalaga og hvaða afleiðingar hafa þær fyrir fólk sem sækir hér um alþjóðlega vernd? Hvernig stuðlum við að upplýstri umræðu um flóttafólk á Íslandi sem ekki elur á ótta og fordómum gagnvart fólki sem leitar hér skjóls?
Upphafserindi
Kári Hólmar Ragnarsson, lektor lagadeild Háskóla Íslands
Pallborðsumræður
Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands,
Íris Ellenberger, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands og
Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands
Umræðustjórn: Eva Bjarnadóttir, stjórnmálafræðingur
Opinn hádegisfundur á vegum Höfða friðarseturs, Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands í stofu N-132 í Öskju.
![Er Ísland að drukkna í flóttafólki?](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4dpb6.jpg?itok=dmrHigFQ)